FiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
Á forsíðu
 

SALTVATN

ANNAÐ

Nephtheidae

UNDIRSÍÐUR

Í ættinni Nephtheidae eru 19 kórallaættkvíslir og þar af um 7 sem tengjast sjávarbúrum í heimahúsum, og verða þær skoðaðar fyrst og fremst.

Ættkvíslirnar eru Capnella, Dendronephthya, Lemnalia, Litophyton, Nepthea, Scleronephthya og Stereonephthya. Nephtheidae kórallar eru kjarróttir og greinóttir og mun fíngerðari og viðkvæmari en hinir þungleitu Alcyoniidae kórallar. Þeir eru flestallir berleggjaðir og greinóttir og hafa óinndraganlega eindregna holsepa. Þeir dragast mun meira saman, enda er haldfesti þeirra (coenenchyme) minna og fjölmörg göng í greinum þeirra og leggjum sem gerir þeim kleift að leggjast saman þegar vatni er dælt út um þau.

Flestir kórallar í ættinni nærast á plöntusvifi sem gerir það að verkum mun erfiðara er að halda þeim lifandi í búrum. Annars eru þetta ákaflega fallegir kórallar sem marga hverja þarf sérfræðikunnáttu til að eiga.

 Capnella
 
Dendronephthya
 
Lemnalia
 
Litophyton
 
Nephthea
 
Scleronephthya
 
Stereonephthya

dendronephthya
botn