Annularis Angel (Blue-ring Angelfish) Pomacanthus annularis
Stærð: 30 cm
Uppruni: Indlandshaf-Vestur-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Glæsilegur fiskur þegar hann er fullvaxta (sjá neðri myndir). Frekar feiminn í fyrstu og felugjarn en það lagast er hann venst nýju umhverfi. Þarf nokkra góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Matgráður þegar hann hefur aðlagast búrinu. Getur verið yfirgangs- samur við suma aðra engla, fiðrildafiska og leðurblökufiska. Ungviðið er töluvert öðruvísi útlits (sjá efstu mynd). Miðlungs harðger fiskur fyrir lengra komna. Getur nartað í kóralla og hryggleysingja.
Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti, stundum svampar. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra minnst þrisvar á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 380 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: J (ungv.): 9.290/12.390/15.490 kr. A (fullorð.): 19.290/24.690/30.890 kr.
|