Australian Clown

Australian Clown (Barrier Reef Anemonefish)
Amphiprion akindynos

Stærð: 9 cm

Uppruni:
V-Kyrrahaf, A-Ástralía.

Um fiskinn:
Harðger trúður frá austurströnd Ástralíu. Latínunafnið er dregið af grísku orði sem merkir “óhultur,”  og það er trúðurinn sannarlega í faðmi sæfífils. Trúðurinn er brún- leitur með tvö hvít þverbönd og hvítan sporð. Hann þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Getur verið svolítið yfirgangssamur við aðra, einkum við skyldar tegundir. Reef-safe. Bestur stakur eða í pörum. Stærri fiskur í pari verður kvenkyns og sá minni karlkyns. Verra að setja tvo fullvaxta fiska saman þar eð þeir væru líkast til hrygnur og myndu slást. Sækir í sæfífl- ana Entacmaea quadricolor, Heteractis aurora, Heteractis crispa, Heteractis magnifica, Sticho- dactyla haddoni og Stichodactyla mertensii. Getur fjölgað sér í búri.

Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 110 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 7.590/8.490/9.890 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998