|
Bicolour Chromis (Blackmouth) Chromis bicolor
Stærð: 9 cm
Uppruni: V-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Auðveldur og áberandi litaður fiskur. Hann hentar mjög vel í flest samfélagsbúr. Hann er harðgerður, yfirleitt meinlaus og hægt að hafa góða torfu saman, sex eða fleiri. Stakir fiskar dafna illa og því betra að hafa þá nokkra saman. Gæta þarf þess að hafa ekki stærri engla með þeim eða ránfiska þar eð þetta er hrekklaus damsel. Ef búrfélagarnir eru yfirgangssamir eða grimmir hættir þessi fiskur að synda í torfu og heldur sér nær kóralgrjótinu. Þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Reef-safe.
Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður, vítamínbætt artemía, mýsisrækjur, þörunga- flögur. Fóðra minnst 3 sinnum á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 80 l (300 l fyrir stóra torfu)
Hitastig: 23-27°C
Verð: 2.290/2.590/3.090 kr.
|