Black Fin Damsel

Black Fin Damsel (Bowtie Damselfish)
Neoglyphidodon (Paraglyphidodon) melas

Stærð: 18 cm

Uppruni:
Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Stórvaxinn blásvartur damselfiskur (mið mynd). Ungviðið er miklu litskrúðugra - grábleikir með gyllt bak (efsta mynd). Þetta er nokkuð grimmur fiskur sem passar ekki með minni fiskum. Bestur stakur eða í pari. Ungviði heldr sér í torfum innan um harða kóralla sem þeir narta í. Fullorðnir halda sér innan um Staghorn Acropora harðkóralla (neðsta mynd) og éta holsepana (polyps) og eru því ekki reef- safe. Þurfa gott búr, hreint vatn og marga felustaði.

Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður, vítamínbætt artemía, mýsisrækjur, þörunga- flögur. Fóðra minnst 3 sinnum á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 360 l.

Hitastig: 23-27°C

Verð: 1.890/1.990/2.190 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998