Blue Queen Angel

Blue Queen Angel (Blue Angelfish)
Holacanthus isabelita

Stærð: 45 cm

Uppruni:
Vestur-Atlantshaf, Karíbahaf.

Um fiskinn:
Myndarlegur bláleitur engill (sjá neðstu mynd) og nokkuð harðgerður. Helsti ókosturinn er stærðin og grimmt eðlið. Stórir ungfiskar eru sérlega uppivöðslusamir og ráðast oft á nýja fiska og aðra engla. Getur verið með öðrum fiskum í stóru og rúmgóðu búri með mörgum felustöðum ef hann er settur síðastur í það. Ungviðið er töluvert öðruvísi útlítandi (efsta mynd). Það líkist mjög drottningarenglinum og hreinsar sníkjudýr af öðrum fiskum. Ekki reef-safe. Nartar í kóralla og hryggleysingja og er svampaæta.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu af spirúlínu og kjötmeti. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 680 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: J (ungv.): 10.490/12.390/13.890 kr.
         A (fullorð.): 15.490/18.490/24.690 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998