Blue Reef Chromis

Blue Reef Chromis (Blue Chromis)
Chromis cyaneus

Stærð: 13 cm

Uppruni:
V-Atlantshaf, Karíbahaf.

Um fiskinn:
Gullfallegur, djúpblár chrómis sem hentar mjög vel í flest samfélagsbúr. Hann er harðgerður, meinlaus og hægt að hafa góða torfu saman, sex eða fleiri. Stakir fiskar dafna illa og því betra að hafa þá nokkra saman. Gæta þarf þess að hafa ekki stærri engla með þeim eða ránfiska þar eð þetta er hrekklaus damsel og sérlega rólyndur. Ef búrfélagarnir eru yfirgangssamir eða grimmir hættir þessi fiskur að synda í torfu og heldur sér nær kóralgrjótinu í felum. Þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði, og tilvalið að hafa góðan straum. Reef-safe.

Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður, vítamínbætt artemía, mýsisrækjur, þörunga- flögur. Fóðra minnst 3 sinnum á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 100 l (300 l fyrir stóra torfu)

Hitastig: 23-27°C

Verð: 2.790/3.290/4.490 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998