Bluespot Angel Chaetodontoplus cyanopunctatus
Stærð: 14 cm
Uppruni: Austur-Indlandshaf og Vestur Kyrrahaf.
Um fiskinn: Sérstæður smáengill þakinn litlum bláum doppum (sjá neðri myndir). Englar af þessari ættkvísl eru eftirsóttir búrafiskar. Þeir eru ágætlega harðgerðir, nokkuð fljótir að aðlagast og tiltölulega rólegir. Þeir eru mjög hlédrægir og dulir og þurfa því rólega búrfélaga og fjölmarga felustaði. Nærist á brúnum þráðþörungum og kísilþörungum. Ungviðið er ljósara í útliti (sjá efstu mynd). Ekki sérlega reef-safe. Getur átt til að narta í kóralla og hryggleysingja. Passar best í vel þroskuðu búri.
Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu af spirúlínu og kjötmeti. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra minnst þrisvar á dag nema búrið sé vel gróið og þroskað.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 210 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 10.790/15.490/20.090 kr.
|