|
Bluestripe Clown (Orangefin Anemonefish) Amphiprion chrysopterus
Stærð: 17 cm
Uppruni: V-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Fallegur og stór trúður. Hann er svarbrúnn á búk með tvö bláhvít bönd - annað um mittið og hitt um höfðuðið. Bakugginn er appelsínu- gulur og sporðurinn hvítur. Trúðurinn þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Nærist á dýrasvifi og þörungum. Getur verið svolítið yfirgangssamur við aðra, einkum við skyldar tegundir. Reef-safe. Bestur stakur eða í pörum. Stærri fiskur í pari verður kvenkyns og sá minni karlkyns. Verra að setja tvo fullvaxta fiska saman þar eð þeir væru líkast til hrygnur og myndu slást. Sækir í sæfíflana Entacmaea quadricolor, Heteractis aurora, Heteractis crispa, Heteractis magnifica, Stichodactyla haddoni og Stichodactyla mertensii. Getur fjölgað sér í búri.
Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 110 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 4.690/7.190/9.690 kr.
|