Cherub Dwarf Angel (Pygmy Angelfish) Centropyge argi
Stærð: 8 cm
Uppruni: Vestur-Atlantshaf, Karíbahaf.
Um fiskinn: Smávaxinn, litsterkur og harðskeyttur dvergengill. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Hlédrægur í fyrstu og felugjarn en ágætlega sýnilegur þegar hann hefur vanist búrinu. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur verið býsna ágengur við aðra fiska, einkum dvergengla. Getur fjölgað sér í heimabúri og er harðger. Hængur og 2-3 hrygnur geta verið saman í rúmgóðu búri (190 l) ef þau eru sett í það á sama tíma. Tveir hængar myndu berjast uns yfir lyki. Sæmilega reef-safe en getur átt það til að narta í kóralla.
Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra minnst þrisvar á dag nema búrið sé vel gróið.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 115 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 5.390/6.990/8.490 kr.
|