|
Chocolate Yellow Clown (Maldive Anemonefish) Amphiprion nigripes
Stærð: 11 cm
Uppruni: V-Indlandshaf, Maldíveyjar, Srí-Lanka.
Um fiskinn: Líflegur smátrúður. Hann er bleik- appelsínugulur á búk með hvítt band um höfðuð. Uggar eru gulleitir nema kviðuggar sem eru dökkir. Trúðurinn þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Getur verið svolítið yfirgangssamur við aðra, einkum sömu tegundar. Hann er ekki eins harðgerður og flestir aðrir trúðar og fer oft illa út úr flutningum. Reef-safe. Bestur stakur eða í pörum. Stærri fiskur í pari verður kvenkyns og sá minni karlkyns. Verra að setja tvo fullvaxta fiska saman þar eð þeir væru líkast til hrygnur og myndu slást. Sækir í sæfífilinn Heteractis magnifica. Getur fjölgað sér í búri.
Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 3.690/5.290/7.990 kr.
|