Cortez Angel

Cortez Angel
Pomacanthus zonipectus

Stærð: 46 cm

Uppruni:
Austur Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Sjaldséður engill sem þarf gott sundrými og nokkra felustaði (sjá neðstu mynd). Frekar hlédrægur í fyrstu og felugjarn en verður fljótt áberandi ef hann er með rólegri fiskum og vatnsgæðin eru góð. Ekki eins yfirgangssamur við aðra og sumir englar en eltist við aðra englafiska. Ungviðið er töluvert öðruvísi útlits (sjá efri myndir) og mjög eftirsótt vegna litarhátts. Ekki reef-safe en með harð- gerðari englum. Nartar í kóralla, hryggleysingja og sæfífla, og étur svampa.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu af spirúlínu og kjötmeti. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra minnst þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 680 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 12.990/15.490/20.790 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998