Domino  Damsel

Domino Damsel (Threespot Dascyllus)
Dascyllus trimaculatus

Stærð: 14 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Vinsæll fiskur í nýuppsett búr vegna þess að hann þolir vatnsskilyrði sem dræpu aðra fiska. Ungviðið er áberandi svart á litinn með hvítan blett (neðsta mynd). Fullvaxta fiskur er litdaufari en hins vegar erfiðari í umgengni og getur orðið árasargjarn með aldrinum, einkum hængar, þ.a. þeir ganga ekki með rólegri fiskum heldur eingöngu stærri og grimmari ss. englum eða stærri dottyback. Þarf stórt búr, einkum ef fleiri en einn, og marga felustaði. Reef-safe. Hægt er að hafa í pari eða stakir. Ungviðið leitar skjóls í sæfíflum (mið mynd). Best að hýsa aðeins einn hæng í hvert búr nema búrið sé þeim mun stærra. Getur fjölgað sér í búri. Gyllt afbrigði til (Fijian Yellow).

Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður, vítamínbætt artemía, mýsisrækjur, þörunga- flögur. Fóðra minnst 3 sinnum á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 210 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: Venjul.: 1.090/1.290/1.490 kr.
         Fijian Yellow.: 1.590/1.990/2.190 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998