Fireball Dwarf Angel

Fireball Dwarf Angel (Orangeback Angelfish)
Centropyge acanthops

Stærð: 8 cm

Uppruni:
Vestur-Indlandshaf.

Um fiskinn:
Bráðlaglegur dvergengill. Hann er nokkuð harðgerður og ekki eins ráðríkur og margir ættingjar hans en getur staðið fast á sínu þegar hann hefur komið sér fyrir í búrinu. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Sæmilega reef-safe en getur átt það til að narta í kóralla en síður hætta á því að hann valdi tjóni ef búrið er stórt.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra minnst þrisvar á dag nema búrið sé vel gróið.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 115 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 7.790/9.690/10.990 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998