Flagfin Angel

Flagfin Angel (Threespot Angelfish)
Apolemichthys trimaculatus

Stærð: 25 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Þessi gullfallegi engill er mjög viðkvæmur búrafiskur og þarf mikla natni til að halda lifandi, helst í velþroskuðu rifbúri með vel gróið kóralagrjót. Hann þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Frekar hlédrægur í fyrstu og felugjarn en verður fljótt áberandi. Getur verið svolítið yfirgangssamur einkum við skyldar tegundir. Nærist einkum á svömpum og getur því nartað í kóralla og hryggleysingja. Bestur stakur í búri. Mjög erfiður í fóðrun. Ungviði (efsta mynd) farnast betur en eldri fiskar.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu af spirúlínu og kjötmeti. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra minnst þrisva á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 280 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 11.590/15.290/20.490 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998