Flame Dwarf Angel

Flame Dwarf Angel (Orangeback Angelfish)
Centropyge loricula

Stærð: 10 cm

Uppruni:
Vestur-, Suður- og Mið-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Gríðarlega litfagur fiskur og augljóslega vinsæll fyrir vikið, en dýr. Hann er nokkuð harðgerður og getur verið ráðríkur við aðra engla og fiska af svipaðri stærð og lögun. Ef hann á að passa vel í samfélagsbúr er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Sæmilega reef-safe en getur átt það til að narta í kóralla en síður hætta á því að hann valdi tjóni ef búrið er stórt.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 75 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 20.090/21.190/24.690 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998