French Angel Pomacanthus paru
Stærð: 38 cm
Uppruni: Karíbahaf, Mið-Atlantshaf.
Um fiskinn: Vinsæll engill meðal kafara í Karíbahafi og nokkuð harðger búrafiskur. Fallegur fiskur (sjá neðstu mynd) sem þarf rúmgott búr, hreint vatn og marga felustaði. Frekar hlédrægur í fyrstu og felugjarn en verður fljótt áberandi. Getur verið yfirgangssamur við hægsyndandi fiska eins og skrínfiska. Ungviði fjarlægir sníkjudýr og dauðan vef af öðrum fiskum og er allt öðruvísi útlits (efsta mynd) og breytist smám saman (mið mynd). Ekki reef- safe. Nartar í kóralla og hryggleysingja.
Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu af spirúlínu og kjötmeti. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra minnst þrisvar á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 510 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: J (ungv.): 11.190/15.090/17.790 kr. A (fullorð.): 21.190/25.490/32.390 kr.
|