Golden Dwarf Angel

Flameback Dwarf Angel (Brazilian Angelfish)
Centropyge aurantius

Stærð: 10 cm

Uppruni:
Vestur- og Suður-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Fallegur náttfari og því torveiddur og eftirsóttur meðal búreiganda. Getur verið ráðríkur við aðra engla og fiska af svipaðri stærð og lögun. Ef hann á að passa vel í samfélags- búr er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Sæmilega reef-safe en getur átt það til að narta í vissa harðkóralla en ekki linkóralla nema kannski xeníur. Étur svampa.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 210 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 24.690/26.190/29.290 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998