|
Green Chromis (Blue-green Chromis) Chromis viridis
Stærð: 9 cm
Uppruni: Kyrrahaf.
Um fiskinn: Mjög auðveldur og ódyr chrómis, og ekki spillir fegurðin heldur fyrir. Þessi rólegi fiskur hentar mjög vel í flest samfélagsbúr. Hann er harðgerður, meinlaus og hægt að hafa góða torfu saman, sex eða fleiri. Stakir fiskar dafna illa. Gæta þarf þess að hafa ekki stærri engla með þeim eða ránfiska þar eð þetta er hrekklaus damsel. Ef búrfélagarnir eru yfirgangssamir hættir þessi fiskur að synda í torfu og heldur sér nær kóralgrjótinu. Þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Reef-safe.
Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður, vítamínbætt artemía, mýsisrækjur, þörunga- flögur. Fóðra minnst 3 sinnum á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 120 l (300 l fyrir stóra torfu).
Hitastig: 23-27°C
Verð: 1.090/1.290/1.590 kr.
|