Keyhole Dwarf Angel

Keyhole Dwarf Angel (Melas Angelfish)
Centropyge tibicen

Stærð: 19 cm

Uppruni:
A-Indlandshaf og V-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Dökkleitur dvergengill með skráar- gatablett á hliðinni. Með stærri dvergenglum. Hann er harður af sér og framhleypinn, og frekar auðveldur í fóðrun. Getur verið yfirgangs- samur við aðra dvergengla og fiska af svipaðri stærð og lögun. Ef hann á að passa vel í blönduðu búri er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Étur brúnan þráðþörung og kísilþörung. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Sæmi- lega reef-safe en getur átt það til að ráðast á kóralla. Stórir hængar hafa fallegan bláan hjúp.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 75 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 6.590/7.790/8.890 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998