Lamarck Angel

Lamarck Angel (Blackstriped Angelfish)
Genicanthus lamarck

Stærð: 23 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Vestur Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Tígullegur og áhugaverður smáengill. Útlitsmunur á kynjum. Karlfiskurinn (sjá neðstu mynd) er með fínni svartar rákir en hrygnan (sjá efstu mynd) og hvíta anga út úr sporðinum. Ungviðið líkist hrygnunni í útliti (sjá mið mynd). Hlédrægur í fyrstu og felugjarn en ágætlega sýnilegur þegar hann hefur vanist búrinu. Syndir mikið á opnum svæðum. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur elt minni fiska en lætur aðra fiska yfirleitt vera, einnig skyldar tegundir. Hafður í pörum eða litlum hópum. Aðeins einn hængur á hvert búr. Nokkuð harðger fiskur sem er ágætlega reef-safe.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 380 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 6.190/8.090/11.190 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998