Lemon Peel Dwarf Angel

Lemon Peel Dwarf Angel
Centropyge flavissimus

Stærð: 14 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Skærgulur dvergengill með bláan augnhring. Hann er eftirsóttur vegna litar- haftsins en oft ekki langlífur. Getur verið yfir- gangssamur við aðra dvergengla og fiska af svipaðri stærð þegar hann hefur aðlagast búrinu. Ef hann á að passa vel í blönduðu búri er best að setja hann síðastan í búrið. Þarf nauðsynlega búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Þekktur fyrir að bíta í kóralla og því ekki reef-safe. Bestur stakur í búri. Ungviðið er með dökkan blett á hliðinni (sjá efstu mynd).

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 75 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 10.090/10.990/13.490 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998