Longfin Basslet

Longfin Basslet (Swallowtail Seaperch)
Pseudanthias fasciatus

Stærð: 27 cm

Uppruni:
A-Atlantshaf, Miðjarðarhaf.

Um fiskinn:
Fagur og litsterkur fiskur sem hentar ekki í kórallabúri. Hann er fagur gulbleikur með langa ugga og lýrusporð (neðsta mynd). Heldur sér oft í torfum í náttúrunni (sjá efstu mynd). Fiskurinn er nokkuð harðgerður og bestur stakur eða einn hængur á móti 5-6 hrygnum ef búrið er nógu stórt (680 l búr). Þarf að hafa nóg af felustöðum og góðan straum. Þarf góð vatnsgæði og ekki of mikinn straum. Kýs helst að vera í lítilli birtu og er meira næturdýr. Það tekur fiskinn góðan tíma að venjast nýju búri. Berst við skylda fiska. Passa að hafa nóg af felustöðum. Étur skeldýr og smáfiska.

Fóður: Dýrasvifsæta. Kjötmeti og grænfóður. Vítamínbætt artemía/mýsis til að halda litnum. Fóðra minnst 4 sinnum daglega.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 380 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 4.090/5.590/7.590 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998