Midnight Dwarf Angel (Black Pygmy Angel) Centropyge nox
Stærð: 10 cm
Uppruni: Vestur- og Mið-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Dökkleitur dvergengill en þó áhugverður búrafiskur. Getur verið yfirgangs-samur við aðra dvergengla og fiska af svipaðri stærð þegar hann hefur aðlagast búrinu. Ef hann á að passa vel í blönduðu búri er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur átt það til að bíta í kóralla. Bestur stakur í búri eða í pörum.
Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 6.590/7.790/8.890 kr.
|