Multicolour Dwarf Angel

Multicolour Dwarf Angel
Centropyge multicolor

Stærð: 9 cm

Uppruni:
Mið-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Afar fallegur og dýr dvergengill sem nú er verið að rækta á Hawaii. Hann heldur sér á töluverðu dýpi í náttúrunni (20 m) og er í miklu uppáhaldi hjá sjávarbúraeigendum. Hann getur verið yfirgangssamur við aðra dvergengla og fiska af svipaðri stærð þegar hann hefur aðlagast búrinu. Ef hann á að passa vel í blönduðu búri er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur átt það til að bíta í kóralla. Bestur stakur í búri eða í pörum og er nokkuð harðger.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 240 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 38.590/42.390/46.290 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998