Potters Dwarf Angel (Russet Angelfish) Centropyge potteri
Stærð: 13 cm
Uppruni: Hawaii-eyjar, Mið-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Gullfallegur dvergengill frá Hawaii eyjaklasanum og vinsæll sökum litarins. Hann getur verið yfirgangssamur við aðra dvergengla og fiska af svipaðri stærð þegar hann hefur aðlagast búrinu. Ef hann á að passa vel í blönduðu búri er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Getur svelt í nýuppsettu búri. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur átt það til að bíta í kóralla. Bestur stakur í búri eða í pörum og er nokkuð harðger. Hrygnir við sólarlag viku fyrir fullu tungli.
Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 75 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 10.790/13.090/16.190 kr.
|