Queensland Grouper

Queensland Grouper (Giant Grouper)
Epinecephelus lanceolatus

Stærð: 270 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Stærsti beinafiskurinn. Getur orðið allt að 400 kg þungur. Stór og mikill fiskur sem hentar eingöngu í allra stærstu búr. Vex hratt (40-50 cm á ári) og er fljótur að vaxa upp úr heimkynnum sínum. Ungviðið er svart með stórum hvítum skellum (efsta mynd) sem hverfa með aldrinum. Þetta er harðgerður mathákur sem étur allt er á tönn festir. Hann er bestur einn í búri og getur auðveldlega gleypt búrfélaga sína í heilu lagi. Þarf mjög stórt og rúmgott búr með öflugri dælingu og hreinsibúnaði þar eð honum fylgir mikill úrgangur. Ekki reef-safe. Hentar eingöngu í stórfiskabúri með öðrum stórum kjötætum og ránfiskum.

Fóður: Kjötmeti. Vítamínbætt artemía/mýsis til að halda litnum, rækjur, skelfiskur, lifandi bráð. Fóðra 2-4 sinnum á viku.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 3.000 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 15.490/21.190/23.190 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998