Saddle Grouper

Saddle Grouper (Blacksaddled Coralgrouper)
Plectropomus laevis

Stærð: 125 cm

Uppruni:
Indlandshaf.

Um fiskinn:
Fallegur og straumlínulagaður fiskur. Þetta er mikill ránfiskur, vel tenntur (efri mynd) og hið mesta átvagl sem leggur sér allt til munns. Þekkist á dökku hnakkamynstrinu og ljósum kviðnum. Vex hratt og er fljótur að vaxa upp úr heimkynnum sínum. Þetta er harðgerður fiskur sem hentar ekki í kórallabúri. Hann er bestur einn í búri og getur auðveldlega gleypt búrfélaga sína í heilu lagi. Þarf mjög stórt og rúmgott búr með öflugri dælingu og hreinsibúnaði þar eð honum fylgir mikill úrgangur. Ekki reef-safe. Hentar eingöngu í stórfiskabúri með öðrum stórum kjötætum og ránfiskum.

Fóður: Kjötmeti. Vítamínbætt artemía/mýsis til að halda litnum, rækjur, skelfiskur, lifandi bráð. Fóðra 2-4 sinnum á viku.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 2.200 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 6.990/9.290/11.590 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998