Scribble Angel

Scribble Angel
Chaetodontoplus duboulayi

Stærð: 25 cm

Uppruni:
Ástralía og Papúa-nýju-gínea.

Um fiskinn:
Eftirsóttur engill og harðger búra- fiskur. Fljótur að aðlagast ef sundrými er gott og felustaðir margir. Hann er tiltölulega rólegur gagnvart skyldum tegundum í fyrstu en færir sig upp á skaftið þegar fram í sækir. Þeir eru annars frekar hlédrægir. Nærast á brúnum þráðþörungum og kísilþörungum. Hængurinn er með hvíta rák í framan (sjá neðstu myndir). Ekki sérlega reef-safe. Getur átt til að narta í kóralla og hryggleysingja, einkum stærri fiskar. Passar best í vel þroskuðu búri.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu af spirúlínu og kjötmeti. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra minnst þrisvar á dag nema búrið sé vel gróið og þroskað.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 380 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 23.190/27.790/36.990 kr.       

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998