Shepard's Dwarf Angel

Shepard’s Dwarf Angel (Mango Angelfish)
Centropyge shepardi

Stærð: 9 cm

Uppruni:
V-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Afar litfagur dvergengill. Þessi engill sést fremur sjaldan og því eftirsóttur. Hann getur verið ráðríkur við aðra dvergengla og fiska af svipaðri stærð þegar hann hefur aðlagast búrinu. Ef hann á að passa vel í blönduðu búri er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur átt það til að bíta í kóralla. Bestur stakur í búri eða í pörum og er frekar harðgerður. Í náttúrunni hefur hængurinn 3-7 í hrygnur í kvennabúri sínu.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 120 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 12.790/15.490/12.990 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998