Swallowtail Angel

Swallowtail Angel (Blackspot Angelfish)
Genicanthus melanospilus

Stærð: 18 cm

Uppruni:
Vestur Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Litfagur smáengill. Mikill útlits- munur er á kynjum. Karlfiskurinn (sjá efstu mynd) er með þéttar svartar rendur en hrygnan (sjá neðri myndir) er gulleit. Hlédrægur í fyrstu og felugjarn en ágætlega sýnilegur þegar hann hefur vanist búrinu. Syndir mikið á opnum svæðum. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur elt minni fiska en lætur aðra fiska yfirleitt vera, einnig skyldar tegundir eins og engla. Hafður í pörum eða litlum hópum. Aðeins einn hængur á hvert búr. Nokkuð harðger fiskur sem er ágætlega reef-safe. Einna bestur hvað kóralla varðar.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 380 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 7.590/9.090/11.190 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998