Velvet Angel

Velvet Angel (Black Velvet Angelfish)
Chaetodontoplus melanosoma

Stærð: 17 cm

Uppruni:
Austur-Indlandshaf og Vestur-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Fallegur smáengill á sanngjörnu verði. Fljótur að aðlagast ef sundrými er gott og felustaðir margir. Hann er tiltölulega rólegur gagnvart skyldum tegundum í fyrstu en færir sig upp á skaftið þegar fram í sækir. Þeir eru annars frekar hlédrægir. Nærast á brúnum þráðþörungum og kísilþörungum. Hængurinn er ljósari í framan (sjá myndir). Ekki sérlega reef-safe. Getur átt til að narta í kóralla og hryggleysingja, einkum stærri fiskar. Passar best í vel þroskuðu búri.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu af spirúlínu og kjötmeti. Getur þurft lifandi fóður eins og artemíu, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur) til að fá hann til að éta. Fóðra minnst þrisvar á dag nema búrið sé vel gróið og þroskað.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 210 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 8.690/13.490/18.190 kr.        

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998