Watanabei Angel

Watanabei Angel (Blackedged Angelfish)
Genicanthus watanabei

Stærð: 15 cm

Uppruni:
Vestur- og Suður-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Yndislegur en dýr smáengill. Kynjamunur er nokkur. Karlfiskurinn (sjá neðstu mynd) er með þéttar svartar rákir og er blárri á baki en hrygnan (sjá efri myndir). Hlédrægur í fyrstu og felugjarn en ágætlega sýnilegur þegar hann hefur vanist búrinu. Syndir mikið á opnum svæðum. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur elt minni fiska en lætur aðra fiska yfirleitt vera, einnig skyldar tegundir eins og engla. Hafður í pörum eða litlum hópum. Aðeins einn hængur á hvert búr annars berjast þeir. Frekar viðkvæmur fiskur sem hentar best í djúpum kórallabúrum. Hann er ágætlega reef- safe. Einna bestur hvað kóralla varðar.

Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra minnst þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 380 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 19.290/23.190/29.290 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998