Yellow Tail Dwarf Angel (Whitetail Angelfish) Centropyge flavicauda
Stærð: 8 cm
Uppruni: Indlandshaf-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Dökkleitur, smávaxinn dvergengill með ýmist gulan eða hvítan sporð. Hann er sæmilega harðgerður. Getur verið ráðríkur við aðra dvergengla af svipaðri stærð þegar hann hefur aðlagast búrinu. Ef hann á að passa vel í blönduðu búri er best að setja hann síðastan í búrið. Vill búr með miklu kórallagrjóti sem býður upp á gott beitiland. Þarf góða felustaði og mjög góð vatnsgæði. Getur átt það til að bíta í kóralla og éta linkóralla. Bestur stakur í búri eða í pörum.
Fóður: Fjölbreytt fóður með miklu grænfóðri og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsis eða ferskt, fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra 2-3 sinnum á dag nema búrið sé vel gróið.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 120 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 4.490/5.90/6.390 kr.
|