Red-necked Amazon

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Red-necked Amason
Amazona arausiaca

Lýsing:
Rauðhálsinn er almennt grænn á lit; hnakka- og bakfjaðrir með mjórri svartri brún; bláfjólubláar fjaðrir á enni, fremst á hvirfli, umhverfis augu og efri hluti kinna; misbreitt rautt band á hálsi og hjá mörgum niður á bringu; vængbrúnir og undirstél- fjaðrir gulgrænar; aðalflugfjaðrir dökkgrænar með fjólubláum endum; aukaflugfjaðrir grænar með fjólubláum endum; þrjár ystu aukaflugfjaðrir rauðar síðan gular og enda í fjólubláu; fjórða aukaflugfjöðrin gul síðan græn og endar í fjólubláu; aðalvængblöðkur dökkgrænar: undirhlið vængja blá; efrihluti stéls grænn með breiðum gulgrænum endum; ytri stélfjaðrir rauðar í rótinni og síðan fjólubláar; undirstél fölgrænt; augnhringur grár; goggur ljós en grár í enda; augu appelsínugul-rauð; fætur gráir.

Lengd: 37 cm

Lífslíkur: 70 ár

Kynin: Kynin eru alveg eins og ekki er hægt að kyngreina nema með DNA-próf.

Upprun: Eyjan Dóminíka í Minni Antilles-eyjum, Karíbahafi.

Þjálfun: Rauðhálsinn er nokkuð góður talfugl Hann er mjög ástúðlegur, en karlfuglinn getur orðið erfiður eftir kynþroska. Góð tamning á meðan karlfuglinn er ungur er nauðsynleg til að koma í veg fyrir að hann verði árásagjarn.

Hávaðasemi: Miðlungi hávær-hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu vegna skógarhöggs. 400 fuglar eftir í náttúrunni.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998