Yellow-winged Amazon

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Önnur afbrigði:
 
Amazona aestiva aestiva

Yellow-winged Amason
Amazona aestiva xanthopteryx

Lýsing:
Gulvængja amasóninn svipar mjög til hins blábrýnda, nema að vængbeygjan er töluvert gulari með rauðar fjaðrir á víð og dreif.

Lengd: 37 cm

Lífslíkur: 70-100 ár

Kynin: Kynin eru alveg eins og ekki er hægt að kyngreina nema með DNA-próf.

Upprun: Suðvestur Mato Grosso í Brasilíu, N- og A-Bólivía, Paragvæ og N-Argentína.

Þjálfun: Gulvængja amasóninn er mjög góður talfugl og álíka vinsæll meðal amasóneigenda og sá blábrýndi. Hann er mjög ástúðlegur, en karlfuglinn getur orðið erfiður eftir kynþroska. Góð tamning á meðan karlfuglinn er ungur er nauðsynleg til að koma í veg fyrir að hann verði árásagjarn.

Hávaðasemi: Miðlungi hávær-hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur en sums staðar í útrýmingarhættu.

Verð: Ótaminn 180.000 kr. Handmataður 260.000 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998