Fuzzy Dwarf Lion

Fuzzy Dwarf Lion (Shortfin Turkeyfish)
Dendrochirus brachypterus

Stærð: 17 cm

Uppruni:
Indlands-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Mjög fallegur ljónafiskur og náskyldur D. zebra. Hann er ekki eins felugjarn en þarf samt marga felustaði, enda í eðli sínu næturdýr. Bestur stakur en má hafa nokkra saman í 280 l búri eða stærra. Þá er best að hafa einn stóran og nokkra minni. Vill oft eingöngu lifandi fóður og má því ekki vera í búri með matgráðugum fiskum sem éta allt frá honum. Ekki reef-safe, enda rækjur og skelfiskur á matseðlinum. Þarf góð vatnsgæði og er ágætlega harðgerður. Er með eiturbrodda í bakugganum sem valdið geta sárum sting.

Fóður: Kjötmeti og fiskar. Lifandi fóðurfiskar, vítamínbætt artemía/mýsis, skelfiskakjöt. Fóðra  3-4 sinnum í viku.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 115 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 3.890/4.690/6.390 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998