|
Percula Clown (Clown Anemonefish) Amphiprion percula
Stærð: 8 cm
Uppruni: V-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Skemmtilegur fagurfiskur. Hann líkist A. ocellaris en er aðeins dekkri og hvítu þverböndin eru með svörtum brúnum. Trúðurinn þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Getur verið svolítið yfirgangssamur við aðra, einkum sömu tegundar. Hann er býsna harðgerður og reef-safe. Bestur stakur eða í pörum. Stærri fiskur í pari verður kvenkyns og sá minni karlkyns. Verra að setja tvo fullvaxta fiska saman þar eð þeir væru líkast til hrygnur og myndu slást. Sækir í sæfíflana Heteractis magnifica, H. crispa og Stichodactyla mertensii. Getur fjölgað sér í búri.
Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra minnst 2 sinnum á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 75 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: Villtir: 2.890/3.690/5.790 kr. Ræktaðir Red: 2.490/2.790/3.490 kr Ræktaðir Black: 2.490/2.790/3.490 kr
|