Red Fiji Clown (Red Anemonefish) Amphiprion rubrocinctus
Stærð: 13 cm
Uppruni: A-Indlandshaf.
Um fiskinn: Litfagur trúður. Dökkbrúnn á búk með appelsínugulum brúnum og þunnu hvítu bandi yfir auganu. sem hentar vel í heimabúri, einkum ræktaðir fiskar. Hann líkist A. frenatus og A. ephippium bæði í útliti og skapi, og getur verið býsna harðskeyttur og ráðríkur. Trúðurinn þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Hann er mjög harðgerður og reef-safe. Bestur stakur eða í pörum. Stærri fiskur í pari verður kvenkyns og sá minni karlkyns. Verra að setja tvo fullvaxta fiska saman þar eð þeir væru líkast til hrygnur og myndu slást. Sækir í sæfíflana Stichodactyla gigantea og Entacmaea quadricolor. Getur fjölgað sér í búri.
Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra minnst tvisvar á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 115 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 3.690/4.690/6.590 kr.
|