Red Fire Clown

Red Fire Clown (Cinnamon Clown)
Amphiprion melanopus

Stærð: 12 cm

Uppruni:
V- og S-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Kröftugur trúður sem hentar vel í heimabúri, einkum ræktaðir fiskar. Hann líkist A. frenatus og A. ephippium bæði í útliti og skapi, og getur verið býsna harðskeyttur og ráðríkur. Hann er svartleitur að aftan en appelsínugulari að framan með ljósari uggum og breittt, hvítt höfuðband. Trúðurinn þarf gott búr, hreint vatn og marga felustaði. Hann er mjög harðgerður og reef-safe. Bestur stakur eða í pörum. Stærri fiskur í pari verður kvenkyns og sá minni karlkyns. Sækir í sæfíflana Heteractis crispa og Entacmaea quadricolor en getur lifað án þeirra. Getur fjölgað sér í heimabúri.

Fóður: Fjölbreytt fóður og kjötmeti. Lifandi fóður eins og artemía, mýsisrækjur eða ferskt fínhakkað sjávarfang (td. smokkfisk, skelfisk, rækjur). Fóðra minnst tvisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 115 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: Indonesian: 3.090/4.690/6.190 kr.
         Pacific:  5.290/7.190/9.090 kr.
         Ræktaðir Black Fin: 1.990/2.290/2.790 kr

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998