Í fuglaættkvíslinni Amazona eru 27 tegundir amason páfagauka og fjölmörg afbrigði. Heimkynni þeirra eru frá Mexíkó suður til Argentínu og á flestum eyjum Karíbahafsins. Þó nokkrar tegundir eru í bráðri útrymingarhættu en aðrar eru enn algengar. Þeir spanna frá um 26 cm á lengd upp í 44 cm þeir stærstu. Svo til allir eru grænir á lit en með mismunandi lit á höfði og af því er nafngift hverrar tegundar yfirleitt dregin. Þetta eru upp til hópa skemmtilegir fuglar og félagslyndir. Þeir láta gjarnan í sig heyra kvölds og morgna. Margar tegundir eru hafðar sem gæludýr í heimahúsum og veita eigendum sínum ómælda ánægju. En það er mikil skuldbinding að eiga þá vegna þess að þetta eru langlífir fuglar og geta orðið eldri heldur en eigendur þeirra. Amasonar eru yfirleitt auðveldir í meðförum en þurfa stöðugan ástríkan aga og gott aðhald til að þeir verði ekki frekir og yfirgangssamir.
|