|
Banded Cat Shark Chiloscyllium punctatum
Stærð: 105 cm
Uppruni: Indlandshaf.
Um fiskinn: Forvitnilegir háfar með áberandi svört bönd í æsku sem síðan dofna mjög með aldrinum. Þeir skríða bókstaflega eftir botninum í ætisleit og nota til þess kröftugu kviðuggana. Þetta er viðkvæmur fiskur sem stækkar hratt en hentar ekki byrjendum. Hann er kjötæta og étur alls kyns kjötmeti og þarf sendinn botn til að róta í og fela sig. Þarf mjög stórt búr með gott sundpláss og straummikið, og mjög góð vatnsskilyrði með próteinfleyti. Hann þolir ekkert kopar. Nóg að fóðra x2 í viku. Hægt að fá þá í eggi og klekja út. Klaktími 130 dagar.
Fóður: Hvers konar kjötmeti og botndýr.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 720 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 12.390/17.390/23.190 kr. Egg 10.790 kr.
|