|
Bicolour Blenny Ecsenius bicolor
Stærð: 10-11 cm
Uppruni: Indlands- og Kyrrahaf
Um fiskinn: Fallegur, tvílitur fiskur sem hefur mest gaman af að kíkja út um felustaðina sína og fylgjast með því sem er að gerast umhverfis. Hann ver svæði sitt og rekur burt alla andstæðinga, en bítur þá þó ekki. Hann getur breytt um lit og fengið hvítan hring á kinnarnar og fyrir ofan augun sem gera hann trúðslegan á að líta. Reef safe.
Fóður: Étur hvers konar lifandi fóður (artemía, mýsis rækjur, smálífverur) og nartar í þörunga. Þarf að komast í þörungabreiður.
Sýrustig (pH): 8,3-4
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 24-27°C
Verð: 2.890/3.490/4.490 kr.
|