|
Black Trigger Melichthys niger
Stærð: 50 cm
Uppruni: Kyrrahaf-Atlantshaf.
Um fiskinn: Harðger og flottur fiskur sem finnst í hlýsjó um allan heim. Hann er dökk svargrænn með fjólubláum undirtónum og nokkuð áberandi útstæðum hnúðum. Vottar fyrir ljósbláum rákum á höfði og enni. Dæling þarf að vera öflug og vatnið súrefnisríkt þar eð gikkfiskar eru sóðar og úrgangur frá þeim mikill. Getur verið með öðrum fiskum seú þeir ekki of smáir. Hentar yfirleitt ekki með kóröllum eða hryggleysingjum. Skapgerð þeirra er mjög breytileg. Sumir eru mestu gæðablóð en aðrir alger skrímsli.
Fóður: Alls konar kjötmeti m.a. ígulker og krossfiskar, smokkfiskur, rækjur. Best að fóðra lítið í einu nokkrum sinnum á dag.
Sýrustig (pH): 8,2-4
Búrstærð: 510 l
Hitastig: 23-26°C
Verð: 8.090/9.390/12.790 kr
|