|
Blackcap Gramma (Black Cap Basslet) Gramma melacara
Stærð: 10 cm
Uppruni: Karíbahaf.
Um fiskinn: Tilvalinn fiskur í kórallabúri og auðþekkjanlegur af purpuralitnum og svörtu blesunni. Hann er yfirleitt hafður stakur. Þetta er nokkuð harðger fiskur. Hann er svifæta og nærist á mýsisrækjum, artemíu og öðrum smálífverum. Þarf gott búr með mörgum felustöðum. Hann skýst gjarnan í felur við minnstu truflun og syndir oft á hvolfi. Ágætur byrjandafiskur en dýr (sóttur á miklu dýpi) og yfirleitt friðsamur við aðra búrfélaga nema af eigin ætt eða Pseudogramma. Vatnsgæði þurfa að vera góð.
Fóður: Artemía, mýsisrækjur, ormar, smádýr, matarleifar.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 12.790/14.290/16.990 kr.
|