|
Caribbean Blue/Yellow Tang (Atlantic Blue) Acanthurus coeruleus
Stærð: 39 cm
Uppruni: Atlantshaf, Karíbahaf.
Um fiskinn: Fallegur og ódýr fiskur. Ungviðið er gult með bláan augnhring (efsta mynd) en fullorðnir albláir með gult beinslíður á spyrðlinum (neðsta mynd). Þarf þörungaríkt og stórt búr með nóg af live-rock til að marka sér svæði, gott sundrými og góða loftun. Er frekar rólegur gagnvart öðrum fiskum en slæst við aðra tanga. Þarf góða hreyfingu á vatninu og nægt æti. Er nokkuð harðger. Má hafa í torfu meðan hann er lítill eða búrið þeim mun stærra (mið mynd) en bestur stakur. Yfirleitt reef-safe.
Fóður: Grænmetisæta - þurrkað þang, caulpera, nori, spirúlínabætt artemía, brokkolí, kálmeti, grænar baunir og frosið fóður. Er sífellt á beit á þörungabreiðum.
Sýrustig (pH): 8,1-8,4
Búrstærð: 290 l
Hitastig: 26-28°C
Verð: 4.090/6.390/8.890 kr.
|