|
Clown Filefish (White Spotted File) Cantherhines macrocerus
Stærð: 13-15 cm
Uppruni: Karíbahaf við Flórídastrendur.
Um fiskinn: Fallegur og forvitinn fiskur með dökkum búk og hvítum doppum. Doppurnar geta nánast horfið og búkurinn orðið appelsínugulur með stórum hvítum flekki. Geislungar í bak- og kviðuggum eru appelsínugulir. Þessi friðsami fiskur hentar í búri með fiskum en ekki hryggleysingjum. Hann er algengur í hafinu og sést iðulega við köfun. Hann hefur gaman af að fela sig í grjóti og bak við gorgóníur og gægjast fram. Þetta er kjötæta og étur smádýr, mýsisrækjur og artemíu. Hann þarf gott sundpláss og hreint vatn.
Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, artemíu, gammarækjur.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 320 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 21.590/24.690/29.290 kr.
|