Clown Parrot

Clown Parrot (Bicolour Parrot)
Cetoscarus bicolor

Stærð: 90 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Stór og stæðilegur fiskur sem stækkar mjög hratt og hefur mikla matarlyst. Ungviðið (efsta mynd) skiptir um lit nokkrum sinnum í uppvextinum. Stórar hrygnur geta skipt um kyn og orðið karlkyns. Hængurinn ver svæðið sitt dyggilega og mikið gengur á við hrygningu (mið mynd). Hann er bestur stakur eða með mikið kvennabúr. Þetta er grænmetisæta og þarf gott live-rock til að narta í og einnig kalkþörunga. Hann er mikið á ferðinni og þess vegna hentar hann eingöngu í mjög stórt búr þar sem hann getur um frjálst höfuð strokið. Hann er ekki svo harðgerður af þessum sökum og hentar ekki í kórallabúr.

Fóður: Hvers konar grænfóður, mýsis, artemía. Fóðra minnst þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 1.150 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 5.590/6.790/8.290 kr.      

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998