|
Clown Wrasse - Formosa (Queen Coris) Coris formosa
Stærð: 60 cm
Uppruni: V-Indlandshaf, Rauðahaf.
Um fiskinn: Fallegur og tígullegur varafiskur sem tekur miklum útlitsbreytingum með aldrinum. Ungviðið er appelsínugult með hvítum skellum (mið mynd) en dökknar svo (efsta mynd). Fullvaxta hængur (neðsta mynd) er grágrænn með svörtum dílum, gult rákótt andlit og fagurbláan og rauðan sporð (neðsta mynd). Þetta er skeldýraæta og lunkin við að snúa við skeljum og grjóti í ætisleit. Fiskurinn plumar sig ágætlega með rólegum búrfélögum. Hann er duglegur hreinsifiskur og reef-safe. Búrið þarf að vera rúmgott með nóg af felustöðum og vatnsgæði góð. Þetta er harðgerður fiskur, auðveldur og mjög litríkur en ekki reef-safe. Þarf þykkt, sendið botnlag til að dyljast í á nóttunni.
Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, vítamínbætt artemíu til að halda litnum, gammarækjur. Fóðra minnst þrisvar á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 510 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: Adult: 7.390/10.090/13.890 kr. Juvenile: 3.290/4.690/5.590 kr.
|