|
Copperband Butterfly (Beaked Butterfly) Chelmon rostratus
Stærð: 20 cm
Uppruni: Indlandshaf og Vestur-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Þessi miðlungsstóri fiðrildafiskur þekkist vel á litamynstrinu og nefinu langa sem hann notar til að leita að æti í klettaskorum og sprungum. Hann er glæsilegur á að líta og passar ágætlega í búri með öðrum fiskum, en getur þó bitið frá sér er hann ver svæðið sitt. Hann étur fjölbreyttan mat og því frekar auðveldur búrafiskur. Sumir geta þó verið matvandir og þurfa góða aðlögun. Copperband fiðrildafiskar eru oft notaðir til að hafa hemil á Aiptasia sæfíflum (gleranemóníum), en geta átt það til að narta í blævængasorma. Fiskurinn er mjög kröfuharður á vatnsgæði.
Fóður: Nærist á fjölbreyttri fæði: orma, snigla, skelfiski, fersku og frosnu foðri, túbífex orma, artemíu, rækjur ofl.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 23-28°C
Verð: Venjul.: 4.690/6.390/8.890 kr. Giant Australian: 8.090/10.490/12.790 kr.
|